Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   fim 23. apríl 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
PSG í viðræðum um leikmann West Ham
Mateus Fernandes í leik með West Ham
Mateus Fernandes í leik með West Ham
Mynd: EPA
Evrópumeistarar Paris Saint-Germain hafa opnað samtalið við Mateus Fernandes, leikmann West Ham, en þetta segir franski miðillinn FootMercato.

Portúgalinn Luis Campos, sem stýrir fótboltamálum hjá PSG, hefur verið duglegur við að sækja samlanda sína síðan hann kom til félagsins árið 2022.

Hann á risastóran þátt í árangri PSG síðustu ár og í raun verið áhrifamesti maðurinn í frönsku deildinni frá 2013, en áður var hann hjá Mónakó og Lille, sem urðu bæði meistarar þegar hann vann hjá félögunum og var duglegur að finna hæfileikaríka leikmenn.

Campos fékk Vitinha, Joao Neves, Goncalo Ramos og Nuno Mendes til félagsins og ætlar nú að sækja annan Portúgala, en samkvæmt Foot Mercato eru viðræður hafnar við Mateus Fernandes hjá West Ham.

Fernandes er 21 árs gamall miðjumaður sem kemur úr akademíu Sporting, en hann þreytti frumraun sína í ensku úrvalsdeildinni árið 2024, þá með Southampton, áður en hann var keyptur til West Ham fyrir tæpar 40 milljónir punda á síðasta ári.

Miðjumaðurinn, sem á einn A-landsleik með Portúgölum, er samningsbundinn til 2030, en ekki er vitað hvað Hamrarnir vilja fá mikið til að leyfa honum að fara í sumar.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner