Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 09:15
Elvar Geir Magnússon
Ofurtölvan metur Arsenal enn sigurstranglegast en líkurnar hafa hríðfallið
Pep Guardiola og Mikel Arteta.
Pep Guardiola og Mikel Arteta.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Arsenal er enn talið líklegast til að verða Englandsmeistari en líkurnar hafa þó hríðfallið síðustu vikur.

Samkvæmt Opta ofurtölvunni eru 65,51% líkur á því að Arsenal tryggi sér titilinn.

Líkurnar á að Arsenal taki titilinn voru taldar 73% áður en Manchester City vann Burnley naumlega í gær og voru 85,2% fyrir toppslaginn á sunnudag þar sem City lagði Arsenal.

Áður en Arsenal tapaði gegn Bournemouth voru líkurnar á titlinum taldar 97% svo þær hafa hrapað gríðarlega á stuttum tíma. En Arsenal er eins og staðan er enn talið sigurstranglegast.

Man City og Arsenal eru hlið við hlið með 70 stig og 37 mörk í plús, en City er í toppsætinu á fleiri mörkum skoruðum.

Arsenal getur náð sex stiga forystu áður en City spilar næst því liðið mætir Newcastle og Fulham á heimavelli áður en City spilar næsta deildarleik.

Leikirnir sem Arsenal á eftir
Newcastle heima
Fulham heima
West Ham úti
Burnley heima
Crystal Palace úti

Leikirnir sem Man City á eftir
Everton úti
Brentford heima
Bournemouth úti
Crystal Palace heima
Aston Villa heima
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
2 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner
banner