Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   fim 23. apríl 2026 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stjörnugrís gengur til liðs við Bestu deildina
Á myndinni má sjá markaðsstjóra Stjörnugríss Einar Sigurð Eiríksson og Birgi Jóhannsson framkvæmdarstjóra ÍTF
Á myndinni má sjá markaðsstjóra Stjörnugríss Einar Sigurð Eiríksson og Birgi Jóhannsson framkvæmdarstjóra ÍTF
Mynd: ÍTF
Íslenskur toppfótbolti (ÍTF) hefur gert samstarfssamning við Stjörnugrís sem verður opinber matarsamstarfsaðili Bestu deildarinnar.

Með samningnum tryggir Stjörnugrís sér sýnileika innan umgjörðar Bestu deildarinnar og réttinn til að kalla vörur sínar opinberan mat deildarinnar. Með samningnum bætist öflugt íslenskt fyrirtæki í hóp samstarfsaðila deildarinnar.

„Við erum mjög ánægð með að fá Stjörnugrís til liðs við Bestu deildina. Stjörnugrís er sterkt og traust íslenskt fyrirtæki og það er afar jákvætt að fá jafn öflugan samstarfsaðila til að styðja við starfsemi deildarinnar,“ segir Birgir Jóhannsson framkvæmdarstjóri ÍTF.

Markaðsstjóri Stjörnugrís segir samstarfið mikilvægt fyrir fyrirtækið.

„Við hjá Stjörnugrís erum stolt af því að hefja samstarf við Bestu deildina. Það er okkur mikilvægt að styðja við íslenskt íþróttalíf og sérstaklega stærstu íþrótt landsins. Við sjáum einnig ótal tækifæri í samstarfinu sem vonandi verða að veruleika í náinni framtíð,“ segir Einar Sigurður Eiríksson markaðsstjóri Stjörnugríss.
Slapp
banner
banner
banner