Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 09:00
Elvar Geir Magnússon
Nýr leikmaður Liverpool gæti orðið besti miðvörður heims
Jacquet í leik með U21 landsliði Frakklands.
Jacquet í leik með U21 landsliði Frakklands.
Mynd: EPA
„Þetta er há fjárhæð en Jacquet hefur allt til brunns að bera til að verða einn besti miðvörður heims á næstu árum," segir fótboltasérfræðingurinn Julien Laurens sem fjallar um franska boltann fyrir ESPN.

Englandsmeistarar Liverpool staðfestu kaupin á franska varnarmanninum Jeremy Jacquet frá Rennes í gær, en hann mun ekki ganga formlega í raðir félagsins fyrr en í sumar.

Kaupverðið nemur um 60 milljónum punda en Jacquet er tvítugur.

Nýr Van Dijk
„Hann er nokkuð hávaxinn, snöggur og sterkur. Hann er algjör vél þegar kemur að einvígum, bæði í loftinu og grasinu. Hann les leikinn vel og er góður á boltann," segir Laurens.

„Hann getur enn bætt sig í að spila út úr vörninni og getur bætt sig tæknilega. En hann er klár strákur og hann getur orðið enn betri og orðið eins og Virgil van Dijk."

Hjá Rennes hefur Jacquet aðallega spilað í þriggja miðvarða kerfi á þessu tímabili. Hann er framúrskarandi þegar kemur að styrk í loftinu og hefur unnið 76% af einvígum í skallaeinvígum. Hann er efstur varnarmanna í frönsku deildinni á þessu tímabili þegar kemur að þeim þætti.

Hann fæddist í Bondy í úthverfi Parísar en frá því svæði komu einnig Kylian Mbappe og William Saliba.
Athugasemdir
banner
banner