Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
banner
   mið 04. febrúar 2026 16:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Langþráð endurkoma Tómasar - „Reyndi svakalega á hausinn"
Mynd: AZ
Í leik með Gróttu 2023.
Í leik með Gróttu 2023.
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Tómas Johannessen sneri aftur á völlinn eftir 10 mánaða fjarveru þegar hann lék fyrri hálfleikinn í öruggum 4-0 sigri AZ Alkmaar á Dortmund í 32-liða úrslitum í Evrópukeppni unglingaliða. Þetta var fyrsti leikur hans frá því í maí í fyrra.

Tómas, sem er fæddur árið 2007, er sóknarsinnaður miðjumaður sem fór til Hollands eftir tímabilið 2023 með Gróttu, en hann er uppalinn hjá Gróttu og Val. Hann lék sína fyrstu leiki í meistaraflokki 2022 og 2023 skoraði hann sex mörk í deild og bikar. Hann á að baki 27 unglingalandsleiki og hefur í þeim skorað sex mörk, þar af eru níu leikir og sex mörk með U19.

„Það er skemmtilegt að vera loksins kominn almennilega til baka," segir Tómas við Fótbolta.net.

„Þetta er búið að vera 'on' og 'off' síðan í mars á síðasta ári þegar ég fór fyrst úr lið í öxlinni. Ég kom til baka í apríl en stuttu seinna fór ég aftur úr lið."

„Ég tók svo allt undirbúningstímabilið í endurhæfingu fyrir öxlina en í lok ágúst, daginn fyrir fyrsta leik, fór ég í þriðja sinn úr lið og þurfti þá að fara í aðgerð í september. Ég kom svo til baka í byrjun janúar almennilega og spilaði í gær."


Hvernig var þessi tími frá vellinum?

„Þetta reyndi svakalega á hausinn, var mjög erfiður og hundleiðinlegur tími. En á sama tíma þetta byggir upp hungur til þess að koma til baka sterkari og betri þannig maður mætir aftur af fullum krafti."

Hann endursamdi í fyrra við AZ og er samningsbundinn til 2029.

„Ég er bara sáttur við það, en allt getur gerst," segir Tómas.
Athugasemdir
banner
banner