Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Gæti fengið samning hjá Arsenal - Celtic með í baráttunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Englendingurinn Alex Oxlade-Chamberlain æfir með aðalliði Arsenal og hefur gert síðustu vikur síðan hann yfirgaf Besiktas, en Mikel Arteta, stjóri enska félagsins, vildi ekki útiloka möguleikann á að gera samning við leikmanninn.

Oxlade-Chamberlain fór ungur að árum til Arsenal frá Southampton og spilaði sex tímabil með Lundúnafélaginu áður en Liverpool festi kaup á honum fyrir 35 milljónir punda í ágúst 2017.

Miðjumaðurinn varð Evrópumeistari með Liverpool árið 2019 og vann síðan úrvalsdeildina ári síðar.

Þessi 32 ára gamli leikmaður eyddi sex árum hjá Liverpool áður en hann hélt til Besiktas árið 2023. Þar spilaði hann í tvö ár áður en hann komst að samkomulagi við félagið um að rifta samningnum á síðasta ári.

Síðustu mánuði hefur hann æft með Arsenal en hann og Arteta þekkjast vel eftir að hafa spilað saman hjá Arsenal.

Arsenal reyndi að sækja miðjumann undir lok gluggans eftir að Mikel Merino meiddist en félagið hann engan í stað hans.

Arteta var spurður að því á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Chelsea í undanúrslitum deildabikarsins hvort það væri möguleiki á því að Oxlade-Chamberlain fengi stuttan samning og vildi hann ekki útiloka það.

„Við munum skoða alla möguleika," sagði Arteta. Það virðist mjög líklegt miðað við að Arsenal hafi ekki tekist að landa leikmanni til að fylla í skarð Merino.

Arsenal mun hins vegar fá samkeppni því samkvæmt Sky Sports er skoska félagið Celtic að skoða það að fá Englendinginn í sínar raðir.

Það liggur ekkert sérstaklega á þar sem hann er samningslaus, en framtíð hans mun þó líklega skýrast á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner
banner