Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 20:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hegðun Romero ekki fyrirliða sæmandi
Mynd: EPA
Cristian Romero, fyrirliði Tottenham, hefur verið gagnrýndur fyrir færslu sem hann sendi frá sér á Instagram í gær. Romero sagði að það væri skammarlegt hversu fáir leikmenn voru til taks í 2-2 jafntefli liðsins gegn Man City um helgiina.

Þar var hann væntanlega að skjóta á aðgerðarleysi stjórnarinnar á leikmannamarkaðnum í janúar. Michael Bridge hjá Sky Sports, segir að þetta sé ekki fyrirliða sæmandi.

„Nei, þetta er ekki það sem þeir vildu rétt eftir gluggalok. Þeir vita að stuðningsmenn séu ekki sáttir að það hafi ekki verið mikið um viðskipti í janúar," sagði Bridge

Tottenham nældi í Conor Gallagher og Souza brasilíumanninn unga. Félagið reyndi við Antoine Semenyo sem fór til Man City og Andy Robertson sem var áfram hjá Liverpool.

„Stuðningsmennirnir vildu meira og vildi Romero meira? Hann nefndi það í færslunni að það væru bara ellefu leikmenn til taks. Hann var sjálfur veikur en byrjaði samt. Fólk hefur talað um að Romero hafi ekki komið þessu rétt frá sér í færslunni en Tottenham á ekki að segja það heldur en Romero. Ég tel að fyrst þetta var skrifað á ensku þá hafi þetta átt að vera svona," sagði Bridge
Athugasemdir
banner
banner