Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Romero skaut aftur föstum skotum á stjórnina
Mynd: EPA
Cristian Romero, fyrirliði Tottenham, hefur verið duglegur að gagnrýna stjórn félagsins en hann sendi frá sér gagnrýni í gær eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Man City um helgina.

Mikil meiðslavandræði eru í hópnum og þá þurfti Romero að fara af velli í hálfleik gegn City vegna veikinda.

„Frábær frammistaða frá öllum liðsfélögum mínum í gær, þeir voru ótrúlegir,“ skrifaði Romero á Instagram.

„Ég vildi vera til staðar til að hjálpa þeim jafnvel þótt mér liði ekki vel, sérstaklega þar sem við vorum aðeins með 11 leikmenn tiltæka - ótrúlegt en satt og skammarlegt.“

Romero gagnrýndi stjórnina eftir tap gegn Bournemouth fyrir tæpum mánuði síðan.

„Það ættu aðrir að stíga upp á svona tímum og tala en þeir gera það ekki, þetta hefur verið svona undanfarin ár. Þeir mæta bara þegar vel gengur og ljúga," skrifaði Romero þá á Instagram.
Athugasemdir
banner
banner