Jean-Philippe Mateta, sóknarmaður Crystal Palace, er í erfiðri stöðu og mikil óvissa eftir að ekkert varð af draumaskiptum hans til AC Milan þar sem hann féll á læknisskoðun.
Mateta hefur verið að spila í gegnum hnémeiðsli að undanförnu og það gæti verið skýringin á því að hann hefur aðeins skorað eitt mark síðan í byrjun desember.
Mateta lét vita af því að hann vildi yfirgefa Palace en eftir tvær læknisskoðanir er hann fastur hjá félaginu. Samkvæmt heimildum komst ítalska félagið að því að Mateta þyrfti líklega að gangast undir aðgerð til að laga vandamál í hægra hné hans.

HM draumarnir flækja málið
Það liggur beint við að Mateta fari í aðgerðina til að laga vandamálið. En möguleikar Mateta á að spila fyrir franska landsliðið á HM í sumar gera stöðuna erfiðari.
Mateta skoraði gegn Íslandi í 2-2 leiknum á Laugardalsvelli í undankeppninni en ef hann fer í aðgerð núna hefur hann skamman tíma til að sannfæra Didier Deschamps landsliðsþjálfara Frakklands um að hann eigi heima í HM hópnum.
Þá er búist við því að kaup Palace á Jörgen Strand Larsen hafi áhrif á spiltíma hans hjá Palace. Samningur Mateta við félagið rennur út sumarið 2027.
Athugasemdir