Loki Kristjánsson, leikmaður Vals, fór í síðasta mánuði í annað sinn á reynslu til danska félagsins Midtjylland. Fyrra skiptið var í október.
Loki er fæddur árið 2011 og lék í desember þrjá leiki með U15 landsliði Íslands. Loki spilaði með 2., 3. og 4. flokki Vals í fyrra.
Hann hefur mest spilað sem framherji en hefur einnig prófað sig í bakverðinum. Hann er örvfættur og æfði með U15 og U17 liðum Midtjylland.

Midtjylland er með öflugt unglingastarf og eru þrír Íslendingar í unglingaliðum félagsins. Það eru Þórsararnir Egill Orri Arnarsson og Sigurður Jökull Ingvarsson, og Alexander Máni Guðjónsson sem kom frá Stjörnunni síðasta sumar. Elías Rafn Ólafsson er aðalmarkmaður félagsins og Daníel Freyr Kristjánsson er á láni hjá Fredericia út þetta tímabil.
Nafn Loka komst á samfélagsmiðla fyrr í vetur þegar uppistandarinn Dóri DNA skrifaði færslu sem tengdist honum. Sonur Dóra, Kári, er jafnaldri Loka.
Framherjinn í fotboltalidi sonar míns, Loki Kristjánsson er ad fara á reynslu til Midtjylland. Djofull verdur þetta real hratt.
— Halldór Halldórsson (@doridna) September 23, 2025
Athugasemdir