Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   lau 04. mars 2023 22:21
Ívan Guðjón Baldursson
Jón Dagur með tvennu í sigri - Alfons í sex marka jafntefli
Mynd: Getty Images
Mynd: Atromitos
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði OH Leuven sem tók á móti Zulte Waregem í efstu deild belgíska boltans.


Leuven komst í þriggja marka forystu fyrir leikhlé þar sem Jón Dagur lék á alls oddi og skoraði bæði og lagði upp. Gestirnir minnkuðu muninn í síðari hálfleik en Jón Dagur innsiglaði sigurinn með marki úr vítaspyrnu á 76. mínútu og urðu lokatölur 4-2.

Leuven er um miðja deild eftir sigurinn, aðeins fjórum stigum frá umspilsbaráttu fyrir sæti í Sambandsdeild Evrópu.

OH Leuven 4 - 2 Waregem
1-0 S. Schrijvers ('29)
2-0 Jón Dagur Þorsteinsson ('41)
3-0 C. De Norre ('45)
3-1 J. Vossen ('73, víti)
4-1 Jón Dagur Þorsteinsson ('76, víti)
4-2 Z. Gano ('82)

Viðar Örn Kjartansson spilaði fyrstu 74 mínúturnar í 1-1 jafntefli Atromitos gegn Asteras Tripolis í efstu deild gríska boltans. Samúel Kári Friðjónsson kom inn af bekknum og fékk að spila síðasta stundarfjórðunginn.

Atromitos er um miðja deild eftir jafnteflið, með 29 stig úr 24 umferðum.

Þá var Alfons Sampsted í byrjunarliði Twente í hollensku deildinni og lék allan tímann í skemmtilegu 3-3 jafntefli gegn Heerenveen.

Alfons lék í hægri bakverði í nokkuð svekkjandi jafntefli þar sem heimamenn fengu hættulegri færi og komust í 3-1 forystu á 55. mínútu leiksins.

Twente er í fimmta sæti eftir jafnteflið sem kemur í kjölfarið af tveimur tapleikjum. Fimmta sæti gefur þátttökurétt í umspil um sæti í Sambandsdeild Evrópu á næstu leiktíð.

Asteras Tripolis 1 - 1 Atromitos

Twente 3 - 3 Heerenveen

Það voru ýmis önnur Íslendingalið sem komu við sögu og má sjá úrslitin úr þeim leikjum hér fyrir neðan.

Asane 1 - 1 Sogndal

Sandhausen 1 - 1 Holstein Kiel

Morecambe 0 - 0 Bolton

Foggia 2 - 0 Viterbese

Kristiansund 0 - 4 Molde

Rochdale 2 - 0 Stevenage

Odd 1 - 0 Stromsgodset


Athugasemdir
banner
banner
banner