Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
   lau 04. júní 2016 12:46
Arnar Daði Arnarsson
Laugardalsvelli
Kári Árna: Skil ekki af hverju það er ekki orðið uppselt
Icelandair
Kári vill sjá fullan völl
Kári vill sjá fullan völl
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Spennustigið er fínt sko og það eykst bara þegar við erum búnir með þennan Liechtenstein leik, þannig að þetta verður bara gaman," sagði Kári Árnason, miðvörður íslenska landsliðsins, fyrir leikinn gegn Liechtenstein á mánudaginn.

Íslenska liðið hefur ekki verið að spila vel síðan liðið tryggði sig inn á Evrópumótið og Kári segir það mikilvægt að snúa blaðinu við.

„Við erum líka ósáttir við margt í hinum æfingaleikjunum sem voru á undan, þannig að við verðum auðvitað að snúa við blaðinu."

Vörnin hefur ekki verið nægilega sterk hjá íslenska liðinu eftir frábæra undankeppni varnarlega, en Kári segir að allt liðið verði að fara að verjast aftur sem lið.

„Það er algjörlega það. Það sem við gerðum vel var að við vörðumst gríðarlega vel sem lið, en það er það sem hefur verið að klikka í æfingaleikjunum. Við erum ekki að verjast nægilega vel sem lið."

Þetta er síðasti leikur Íslands á Laugardalsvelli undir stjórn Lars Lagerback og Kári vill auðvitað sjá fullan völl.

„Það er náttúrulega lykilatriði og ég skil ekki af hverju það er ekki orðið uppselt til þess að kveðja kallinn og að kveðja landsliðið á góðu nótunum áður en við förum út," sagði Kári að lokum.

Viðtalið má í heild sinni sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner