
Hörður Björgvin Magnússon er í landsliðshópnum sem mætir Albaníu og Tyrklandi í næstu leikjum Íslands í undankeppni EM sem fram fara á Laugardalsvelli næstkomandi laugardag og þriðjudag.
Hörður Björgvin er kominn heim eftir sitt fyrsta tímabil í Rússlandi með CSKA Moskvu. Hann segist vera ánægður með sitt fyrsta tímabil í Rússlandi.
Hörður Björgvin er kominn heim eftir sitt fyrsta tímabil í Rússlandi með CSKA Moskvu. Hann segist vera ánægður með sitt fyrsta tímabil í Rússlandi.
„Við byrjuðum hrikalega vel og auðvitað vildum við enda ofar. Með svona ungt og reynslulítið lið gerðum við mjög vel og náðum allavegana Evrópusætinu. Það var mjög mikilvægt að ná því en við vildum auðvitað ná í Meistaradeildarsæti. Það var hörð samkeppni að ná því en ég óska Jóni Guðna til hamingju með að hafa náð því," sagði Hörður Björgvin en Jón Guðni og félagar í Krasnodar enduðu með fimm stigum meira en CSKA Moskva í deildinni og fara í forkeppni Meistaradeildarinnar.
Hörður Björgvin er ánægður með styrkleikann í rússnesku deildinni.
„Ég bjóst við að hún væri mjög sterk eins og hún var. Það var mjög gaman að spila í henni og sé ekki eftir því að hafa farið til Rússlands. Mér líkar vel þar og það er mikil tilhlökkun að byrja næsta tímabil aftur."
Hörður er spenntur fyrir komandi landsleikjum gegn Albaníu og Tyrklandi.
„Við erum búnir með Frakkana en við vitum að þeir verða efstir í þessum riðli. Það er hörð barátta um 2. sætið og auðvitað þurfum við að gera vel í þessum leikjum og vinna báða leikina. Við byrjum gegn Albaníu en mætum síðan Tyrkjunum sem er líklega erfiðari leikur. Tyrkir eru með glænýtt lið og nýjan þjálfara þannig þetta verða tveir erfiðir leikir."
Viðtalið við Hörð Björgvin má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir