Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   sun 08. júní 2025 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeildin í dag - Úrslitaleikir í Þýskalandi
Mynd: EPA
Tveir síðustu leikirnir í A-deild Þjóðadeildarinnar fara fram í dag þegar fjórar af sterkustu fótboltaþjóðum heims mæta til leiks.

Úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar fer fram í Þýskalandi og eiga heimamenn leik við Frakkland klukkan 13:00.

Liðin mætast í úrslitaleik um bronsverðlaun Þjóðadeildarinnar eftir að hafa tapað gegn Portúgal og Spáni í undanúrslitum.

Portúgal spilar við Spán klukkan 19:00 í spennandi Íberíuslag í kvöld.

Þessar þjóðir mættust síðast í Þjóaðdeildinni 2022 og hafði Spánn betur í það skiptið, en aðeins naumlega. Fyrir það mættust þjóðirnar í riðlakeppni HM 2018 í leik sem endaði í 3-3 jafntefli eftir þrennu frá Cristiano Ronaldo.

Leikir dagsins
13:00 Þýskaland - Frakkland
19:00 Portúgal - Spánn
Athugasemdir
banner