
Íslensku atvinnukonurnar í norsku B-deildinni verma toppsæti deildarinnar eftir úrslit dagsins.
Daníela Dögg Guðnadóttir var í byrjunarliði Álasunds sem vann 4-0 sigur á Start í dag.
Hún spilaði klukkutíma áður en henni var skipt af velli en Álasund er í öðru sæti með 19 stig eftir níu umferðir.
Marie Jóhannsdóttir var ekki með Molde í 1-0 sigri liðsins á Ham/Kam í dag.
Skagfirðingurinn meiddist í síðasta leik og var ekki leikfær í dag, en Molde er á toppnum með 20 stig.
Athugasemdir