Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Undankeppni HM í dag - Skyldusigrar fyrir Noreg og Færeyjar
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það eru sex leikir á dagskrá í undankeppni Evrópuþjóða fyrir HM 2026 á dagskrá í dag.

Kasakstan tekur á móti Norður-Makedóníu í fyrsta leik dagsins en hinir fimm leikirnir hefjast samtímis.

Frændur okkar frá Noregi heimsækja þar Eistland og búast við þægilegum sigri eftir frábæra byrjun á undankeppninni. Norðmenn eru með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir og sigruðu Ítalíu 3-0 í síðasta leik.

Ítalir taka á móti Moldóvu og þurfa sigur. Þeir eru búnir að reka Luciano Spalletti þjálfara.

Króatía spilar þá spennandi leik við Tékkland á meðan Belgía mætir Wales. Belgar gerðu óvænt jafntefli við Norður-Makedóníu í sínum fyrsta leik í undankeppninni.

Að lokum eiga frændur okkar í Færeyjum heimaleik gegn Gíbraltar og munu búast við að ná í sín fyrstu stig í undankeppninni eftir nauma tapleiki gegn Tékklandi og Svartfjallalandi í fyrstu umferðunum.

Leikir dagsins
14:00 Kasakstan - Norður-Makedónía
18:45 Eistland - Noregur
18:45 Belgía - Wales
18:45 Færeyjar - Gíbraltar
18:45 Ítalía - Moldóva
18:45 Króatía - Tékkland
Athugasemdir
banner
banner