Portúgal 2 - 2 Spánn
0-1 Martin Zubimendi ('21)
1-1 Nuno Mendes ('26)
1-2 Mikel Oyarzabal ('45)
2-2 Cristiano Ronaldo ('61)
5-3 í vítaspyrnukeppni
0-1 Martin Zubimendi ('21)
1-1 Nuno Mendes ('26)
1-2 Mikel Oyarzabal ('45)
2-2 Cristiano Ronaldo ('61)
5-3 í vítaspyrnukeppni
Portúgal og Spánn áttust við í úrslitaleik Þjóðadeildarinnar í kvöld. Leikurinn fór fram í München og voru Spánverjar talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik.
Þeir tóku forystuna eftir 21 mínútu þegar Martín Zubimendi skoraði eftir frábæra sókn en það tók vinstri bakvörðinn öfluga Nuno Mendes fimm mínútur að svara með jöfnunarmarki.
Spánverjar voru mun sterkara liðið og verðskulduðu að taka forystuna á ný skömmu fyrir leikhlé þegar Mikel Oyarzabal, samherji Orra Steins Óskarssonar hjá Real Sociedad, kláraði vel eftir stórkostlegan undirbúning frá Pedri.
Leikurinn jafnaðist út og róaðist niður í seinni hálfleik en Portúgölum tókst að jafna metin á 61. mínútu. Í þetta sinn var komið að hinum fertuga Cristiano Ronaldo sem skoraði eftir að boltinn breytti um stefnu af varnarmanni.
Nuno Mendes gaf boltann fyrir markið en hann breytti um stefnu og skaust upp í loftið. Þar tókst Ronaldo að vinna stöðubaráttuna og skora auðvelt mark af stuttu færi. Reynslan nýttist vel þarna og staðan orðin 2-2.
Það var lítið að frétta á síðasta hálftíma venjulegs leiktíma. Spánverjar áttu bestu marktilraunina en Diogo Costa varði boltann í hornspyrnu.
Framlengingin var svo afar bragðdauf þar sem hvorugu liði tókst að gera sigurmark og fór leikurinn í vítaspyrnukeppni.
Þar skoruðu báðar þjóðir úr þremur fyrstu spyrnunum sínum en Álvaro Morata klúðraði fjórðu spyrnu Spánverja.
Rúben Neves steig á vítapunktinn og innsiglaði sigur Portúgala með fimmtu spyrnunni.
Athugasemdir