Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Aït-Nouri búinn í læknisskoðun
Mynd: EPA
Vinstri bakvörðurinn Rayan Aït-Nouri verður orðinn nýr leikmaður Manchester City á næstu dögum eftir að hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu.

Man City borgar um 35 milljónir punda til að kaupa leikmanninn en búist var við að Wolves myndi heimta um 50 milljónir fyrir hann.

Fabrizio Romano greinir frá því að Aït-Nouri sé búinn að standast læknisskoðun og samþykkja fimm ára samning við stórveldið.

Það er enduruppbygging í gangi hjá Man City eftir mikið vonbrigðatímabil og er liðið einnig að krækja í leikmenn á borð við Rayan Cherki og Tijjani Reijnders. Það eru ákveðin kynslóðaskipti að eiga sér stað hjá félaginu.
Athugasemdir
banner