KSÍ er búið að ganga frá samkomulagi við Garðabæ um æfingar yngri landsliða karla og kvenna í Miðgarði.
Miðgarður í Garðabæ er frábær æfingaaðstaða og felur samningurin við KSÍ áframhaldandi notkun á íþróttahúsinu næstu þrjú árin, eða til 31. mars 2028.
KSÍ fær til afnota aðstöðu á skilgreindum rýmum í Miðgarði á tilteknum tímum dagsins. Auk fótboltasalsins fá unglingalandsliðin afnot af ýmsum stoðrýmum svo sem sjúkraherbergi, búningsklefa, fundaraðstöðu og þrekæfingasvæði.
KSÍ skipuleggur vel á annað hundrað æfingar yngri landsliða og tengda viðburði í Miðgarði á hverju ári.
Athugasemdir