Tottenham Hotspur er í leit að nýjum þjálfara eftir að Ange Postecoglou var rekinn á dögunum.
Danski þjálfarinn Thomas Frank er langlíklegastur til að vera ráðinn sem arftaki hans eftir að hafa gert frábæra hluti við stjórnvölinn hjá Brentford á undanförnum sjö árum.
Frank vill taka við Tottenham en hann er með tvö ár eftir af samningi sínum við Brentford og 10 milljón punda riftunarákvæði.
Sky Sports greinir frá því að Brentford sé hins vegar búið að samþykkja að hefja viðræður við Tottenham um félagaskipti Thomas Frank.
Tottenham mun því geta krækt í þjálfarann fyrir lægri upphæð heldur en þær 10 milljónir sem segir til um í riftunarákvæðinu.
Athugasemdir