Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 21:31
Ívan Guðjón Baldursson
Bardghji neitar að skrifa undir hjá FCK
Bardghji ásamt Orra Steini Óskarssyni þegar þeir voru liðsfélagar í Kaupmannahöfn.
Bardghji ásamt Orra Steini Óskarssyni þegar þeir voru liðsfélagar í Kaupmannahöfn.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Porto er fyrsta félagið til að leggja fram opinbert tilboð í sænska táninginn Roony Bardghji, sem hefur verið mikilvægur hlekkur í sterku liði FC Kaupmannahafnar á síðustu árum.

Hann sleit krossband í fyrra og var frá keppni í um ellefu mánuði þar til hann snéri aftur á völlinn í lok mars. Bardghji kom við sögu í sex leikjum með FCK eftir krossbandsslitið en tókst hvorki að skora né leggja upp og svo meiddist hann aftur í maí.

Nýjustu meiðsli Bardghji eru ekki alvarleg en ljóst er að leikmaðurinn ætlar ekki að stoppa mikið lengur í Danmörku þar sem hann hefur neitað að skrifa undir nýjan samning við FCK.

Núverandi samningur hans við félagið rennur út um áramótin og mun þessi örvfætti kantmaður þá geta skipt um félag á frjálsri sölu.

Tottenham og Newcastle eru meðal liða sem vilja krækja í Bardghji, en portúgalska stórveldið Porto ætlar að reyna að vera fyrra til.

Ekki er greint frá hversu hátt tilboð Porto er, en góðar líkur eru á því að FCK selji leikmanninn sinn í sumar til að missa hann ekki frítt næsta vetur.

Bardghji verður 20 ára í nóvember og er mikilvægur hlekkur í U21 landsliði Svía.
Athugasemdir
banner