Spánn og Portúgal eru að etja kappi í úrslitaleik Þjóðadeildarinnar og er leikurinn kominn í framlengingu, þar sem staðan er 2-2.
Spánverjar tóku forystuna í tvígang en Portúgölum tókst að jafna í bæði skiptin þrátt fyrir yfirburði Spánverja á vellinum.
Það er þó búið að setja stórt spurningarmerki við lögmæti fyrsta marks Spánverja í leiknum þar sem Mikel Oyarzabal virðist hafa haft áhrif á leikinn úr rangstöðu.
Lamine Yamal átti fyrirgjöf og það var enginn rangstæður þegar boltinn fór af stað. Martín Zubimendi virðist þó hafa snert boltann með hausnum og gert Oyarzabal rangstæðan.
Oyarzabal snerti þó aldrei boltann, en hann reyndi að ná til boltans og hafði augljós áhrif á Rúben Dias, varnarmann Portúgal sem mistókst að hreinsa frá marki. Í kjölfarið datt boltinn fyrir Zubimendi sem skoraði.
Sjáðu markið
Possible offside before Spain's first goal
byu/randy__randerson insoccer
Athugasemdir