Kylian Mbappé skoraði og lagði upp þegar Frakkland tryggði sér bronsið í Þjóðadeildinni með sigri gegn Þjóðverjum í Þýskalandi í dag.
Þetta var fimmtugasta landsliðsmark Mbappé sem gerir hann að þriðja markahæsta landsliðsmanni Frakklands frá upphafi, einu marki á eftir Thierry Henry og sjö mörkum á eftir Olivier Giroud.
Þetta er magnað afrek hjá Mbappé sem hefur skorað 0,56 mörk á leik með franska landsliðinu, samanborið við 0,41 og 0,42 mörk á leik hjá Henry og Giroud.
Mbappé er þar að auki aðeins einni stoðsendingu frá því að jafna met Antoine Griezmann, sem er með 38 skráðar stoðsendingar í landsleikjum Frakklands.
26 ára gamall Mbappé er því hársbreidd frá því að verða stoðsendinga- og markahæsti leikmaður í sögu franska landsliðsins.
Ef mörk og stoðsendingar eru lagðar saman hefur Mbappé þó vinninginn framyfir alla samlanda sína, með Henry í öðru sæti.
Athugasemdir