Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Garnacho fer frá Man Utd
Garnacho kom að 21 marki í 58 leikjum með Man Utd á tímabilinu.
Garnacho kom að 21 marki í 58 leikjum með Man Utd á tímabilinu.
Mynd: EPA
Fótboltafréttamaðurinn mikilsvirti Fabrizio Romano greinir frá því að Alejandro Garnacho mun ekki spila annan leik fyrir Manchester United.

Leikmaðurinn vill skipta um félag og vilja stjórnendur Man Utd að sama skapi selja hann.

Garnacho er tvítugur kantmaður, sem verður 21 árs um mánaðamótin, og hefur komið að 48 mörkum í 144 leikjum hjá United.

Hann á átta A-landsleiki að baki fyrir heimsmeistara Argentínu og eru hæfileikar hans óumdeildir, vandamálið hefur verið hugarfarið hans með Rauðu djöflunum.

Það eru mörg félög áhugasöm um að kaupa Garnacho. Þrjú úrvalsdeildarfélög hafa sett sig í samband við umboðsteymi hans, auk ýmissa félaga frá Ítalíu og Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Þar gæti hann endursameinast Erik ten Hag fyrrum þjálfara sínum hjá Man Utd.
Athugasemdir
banner