Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 17:50
Ívan Guðjón Baldursson
Everton og Newcastle með í kappinu um Grealish
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Jack Grealish er að öllum líkindum að skipta um félag í sumar eftir fjögur ár hjá Manchester City.

Grealish á tvö ár eftir af samningi við félagið og er óljóst hvað Man City vill mikinn pening fyrir enska landsliðsmanninn, sem kostaði félagið 100 milljónir punda þegar hann var keyptur frá Aston Villa.

Grealish er búinn að missa sæti sitt í enska landsliðinu útaf litlum spiltíma hjá Man City og var svo ekki valinn í leikmannahóp liðsins fyrir HM félagsliða.

Grealish leikur sem kantmaður eða sóknartengiliður og þykir afar hæfileikaríkur fótboltamaður. Hann var langbesti leikmaðurinn í liði Aston Villa þegar hann var keyptur burt frá félaginu og hefur Villa bætt sig mikið sem lið síðan.

Unai Emery þjálfari Villa vill reyna að fá Grealish aftur til félagsins en það er erfið samkeppni frá Tottenham, Newcastle og Everton um leikmanninn.

Talið er að Newcastle vilji fá hann á lánssamning með kaupmöguleika en City vill helst selja leikmanninn í sumar.

Grealish verður 30 ára í september og hefur spilað 39 landsleiki fyrir England.
Athugasemdir
banner