Danski sóknarmaðurinn Rasmus Höjlund segist fastlega gera ráð fyrir því að vera áfram hjá Manchester United á næsta tímabili.
Höjlund reið ekki feitum hesti með United á síðasta tímabili. Hann átti að vera aðalmaðurinn í sókninni, en skoraði aðeins fjögur deildarmark á versta tímabili í sögu félagsins.
Daninn hefur verið orðaður við endurkomu til Ítalíu og er Inter talið leiða kapphlaupið, en Höjlund vísar sögusögnum um brottför til föðurhúsanna.
„Ég er með samning til 2030, þannig ég býst við því að ég spili með Manchester United. Ég hlakka mikið til að fara í sumarfrí og síðan mun ég helga mér því verkefni sem er komið af stað hjá félaginu.“
„Ég veit að ég græði ekkert á því að lesa fréttir. Ég veit hverjar staðreyndirnar eru og það er að ég er samningsbundinn Man Utd til 20230. Ég geri ráð fyrir því að spila þar, þannig eins og ég segi þá fer ég í frí og á síðan vonandi gott undirbúningstímabil,“ sagði Höjlund við TV2.
Athugasemdir