Sky Sports greinir frá því að allt sé orðið klárt fyrir félagaskipti Kevin De Bruyne frá Manchester City eftir að samkomulag náðist um ímyndarrétt leikmannsins. Hann virðist vera á leið til Ítalíumeistara Napoli þar sem hann mun spila undir stjórn Antonio Conte.
De Bruyne er goðsögn hjá Man City og í fótboltaheiminum og rennur út á samningi um mánaðamótin.
Félög úr MLS deildinni og frá Sádi-Arabíu eru meðal þeirra sem hafa sett sig í samband við De Bruyne, auk Aston Villa og fleiri félaga, en leikmaðurinn virðist vera búinn að taka ákvörðun.
De Bruyne verður 34 ára gamall eftir þrjár vikur og vill spila í hæsta gæðaflokki sem lengst.
Talið er að Romelu Lukaku, góðvinur De Bruyne og landsliðsfélagi hjá Belgíu, hafi átt sinn þátt í að sannfæra leikmanninn um að flytja til Ítalíu.
De Bruyne er að margra mati einn af allra bestu leikmönnum sem hafa nokkurn tímann spilað í ensku úrvalsdeildinni.
Scott McTominay og Billy Gilmour eru báðir í liði Napoli ásamt Lukaku. Þeir þekkja De Bruyne úr ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir