Velski miðjumaðurinn Aaron Ramsey er á leið í óvænt ævintýri til Mexíkó en hann er á leið Pumas frá Cardiff City. PA Agency greinir frá.
Ef skiptin ganga í gegn verður Ramsey fyrsta stóra nafnið frá Bretlandseyjum til þess að spila í mexíkósku deildinni.
Ramsey er 34 ára gamall og lék áður með Arsenal og Juventus.
Hann var á mála hjá Cardiff á síðustu leiktíð og stýrði síðan liðinu í síðustu þremur leikjum tímabilsins eftir að Omer Riza var rekinn frá félaginu.
Ramsey tókst ekki að bjarga Cardiff frá falli en félagið íhugaði samt sem áður að gefa honum tækifæri í C-deildinni á næstu leiktíð.
Samkvæmt PA Agency er Ramsey á leið til Pumas í Mexíkó, en hann er hjá sömu umboðsmannaskrifstofu og Efrain Juarez, þjálfari liðsins.
Velski landsliðsfyrirliðinn hefur verið að glíma við meiðsli síðustu tvö ár, en talið er að hann sé að fara til Pumas til að eiga meiri möguleika á að vera í velska landsliðinu fyrir HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó á næsta ári.
Athugasemdir