Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Búast við ákvörðun í máli Crystal Palace í lok mánaðar
Textor reyndi að selja hlut sinn í Palace til að fjármagna kaup á Everton í fyrra.
Textor reyndi að selja hlut sinn í Palace til að fjármagna kaup á Everton í fyrra.
Mynd: EPA
Oliver Glasner hefur gert magnaða hluti frá því að hann tók við. Hér er hann ásamt miðverðinum eftirsótta Marc Guéhi sem á aðeins eitt ár eftir af samningi.
Oliver Glasner hefur gert magnaða hluti frá því að hann tók við. Hér er hann ásamt miðverðinum eftirsótta Marc Guéhi sem á aðeins eitt ár eftir af samningi.
Mynd: EPA
Óljóst er hvort Crystal Palace fær leyfi til að taka þátt í Evrópudeildinni á næstu leiktíð þrátt fyrir að hafa tryggt sér farmiða í keppnina með því að sigra gegn Manchester City í úrslitaleik enska bikarsins.

Ástæðan fyrir því er eignarhald félagsins, þar sem bandaríski viðskiptajöfurinn John Textor á 43% hlut í félaginu auk þess að vera meirihlutaeigandi í franska félaginu Lyon, sem tekur einnig þátt í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.

Samkvæmt reglum UEFA mega tvö lið sem eru undir sama eignarhaldi ekki spila í sömu keppni.

Textor hefur margoft reynt að selja hlut sinn í Palace án árangurs en stjórnendur félagsins vonast til að geta tekið þátt í Evrópudeildinni án þess að Textor selji sinn hlut.

Stjórnendur Palace funduðu með stjórnarmönnum UEFA á dögunum en búast ekki við ákvörðun fyrr en í lok mánaðar.

Í rökfærslu sinni benti Crystal Palace á það að Textor á ekki meirihluta í félaginu, hann stjórnar því ekki ákvarðanatökum stjórnarinnar. Hann er aftur á móti meirihlutaeigandi í Lyon og stjórnar því sem gengur á þar á bæ, auk þess að eiga brasilíska félagið Botafogo og RWD Molenbeek í Belgíu.

Ef UEFA ákveður að meina Crystal Palace þátttöku er ólíklegt að Textor selji hlut sinn á afsláttarverði. Þá myndi Nottingham Forest komast í Evrópudeildina og Brighton & Hove Albion, sem er eitt af helstu fjandliðum Palace, í Sambandsdeildina. Það yrði ótrúlega sárt fyrir stuðningsmenn Crystal Palace.

Svipuð staða hefði getað komið upp hjá Nottingham Forest og Olympiakos, sem eru bæði í eigu gríska auðkýfingsins Evangelos Marinakis. Marinakis var þó fljótur að bregðast við og gaf upp stjórn á Forest, en félögin enduðu ekki á að komast í sömu keppni. Olympiakos leikur í Meistaradeildinni og Forest er búið að tryggja sig í Sambandsdeildina.
Athugasemdir
banner
banner
banner