Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 16:37
Ívan Guðjón Baldursson
Sunneva lagði upp - Sigdís kom inn af bekknum
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir var í byrjunarliði FCK og lagði fyrsta mark leiksins upp í 2-1 sigri gegn Næstved í dag.

Kaupmannahöfn er þegar búið að tryggja sér sæti í næstefstu deild á næstu leiktíð og því var sigurinn þýðingarlítill.

Í sænska boltanum kom Sigdís Eva Bárðardóttir inn af bekknum í afar svekkjandi tapleik hjá Norrköping gegn Piteå.

Norrköping var sterkari aðilinn en Piteå fékk tvö marktækifæri í leiknum og skoraði úr þeim báðum. Lokatölur 1-2.

Norrköping er í fallsæti með 10 stig eftir 10 umferðir, fjórum stigum á eftir Piteå.

Kaupmannahöfn 2 - 1 Næstved

Norrköping 1 - 2 Pitea

Athugasemdir
banner