Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 20:13
Ívan Guðjón Baldursson
Lewandowski ætlar ekki að spila aftur fyrir Probierz
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Pólski framherjinn Robert Lewandowski hefur sett sig upp á móti Michal Probierz landsliðsþjálfara Póllands og ætlar ekki að spila annan leik fyrir þjóð sína meðan hann er við stjórnvölinn.

Þessar fregnir berast skömmu eftir að Probierz tók fyrirliðabandið af Lewandowski. Piotr Zielinski er nýr fyrirliði Póllands.

Lewandowski hefur verið gagnrýninn á stjórnarhætti Probierz þar sem honum líður eins og pólska landsliðið geti náð mun betri árangri með annan mann við stjórnvölinn.

Probierz hefur stýrt Póllandi í tæplega tvö ár. Hann kom þjóðinni á EM í fyrra en fékk aðeins eitt stig úr riðlakeppninni. Pólverjar féllu svo úr A-deild Þjóðadeildarinnar eftir tap á heimavelli gegn Skotlandi í lokaumferðinni í nóvember.

„Ég hef ákveðið að hætta að spila fyrir pólska landsliðið svo lengi sem þjálfarinn verður áfram," skrifaði Lewandowski í Instagram Story. „Ég vona að ég fái aftur tækifæri í framtíðinni til að spila fyrir bestu stuðningsmenn heims."

Lewandowski segist hafa misst traust sitt á stjórnarháttum Probierz og vill þess vegna ekki spila fyrir hann. Hann er ósammála varnarsinnuðu leikskipulagi sem Probierz heimtar að spila og telur þjálfarann ekki ná vel til leikmanna. Hann er oft ósammála liðsvali þjálfarans og telur engan rökstuðning vera á bakvið ákvarðanir hans.

Lewandowski verður 37 ára gamall í ágúst og er besti leikmaður í sögu pólska landsliðsins.
Athugasemdir
banner