Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Brighton býður 36 milljónir fyrir grískan táning
Kostoulas í baráttunni við Tiago Djaló, eftirsóttan varnarmann Porto sem verður samningslaus í sumar.
Kostoulas í baráttunni við Tiago Djaló, eftirsóttan varnarmann Porto sem verður samningslaus í sumar.
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton & Hove Albion er staðráðið í því að kaupa gríska táninginn Charalampos Kostoulas úr röðum Olympiakos.

Brighton er búið að bjóða 36 milljónir punda fyrir sóknarleikmanninn sem er aðeins 18 ára gamall.

Kostoulas leikur sem framherji að upplagi en getur einnig spilað sem sóknartengiliður eða sóknarsinnaður miðjumaður. Hann hefur verið algjör lykilmaður upp yngri landslið Grikkja og á tvö mörk í tveimur leikjum fyrir U21 landsliðið þrátt fyrir ungan aldur.

Hann skoraði fimm mörk í tveimur leikjum með U19 liði Olympiakos á upphafi tímabils og var færður beint upp í aðalliðið í kjölfarið. Þar tókst honum að skora 7 mörk í 22 deildarleikjum á nýliðinni leiktíð.

Olympiakos er ekki búið að samþykkja tilboðið frá Brighton, viðræður eru í gangi. Ef Brighton gengur frá skiptunum verður Kostoulas dýrasti gríski leikmaður sögunnar þrátt fyrir að vera aðeins nýlega orðinn 18 ára gamall.
Athugasemdir
banner