Nígeríski framherjinn Victor Osimhen er á leið til sádi-arabíska stórveldisins Al-Hilal.
Al-Hilal er að kaupa hann úr röðum Ítalíumeistara Napoli fyrir um 75 milljónir evra og fær leikmaður risasamning.
Osimhen var algjör lykilmaður þegar Napoli vann ítölsku deildina 2022-23 en lenti upp á kant við Aurelio De Laurentiis eiganda og var lánaður til Galatasaray á síðustu leiktíð.
Hann raðaði inn mörkunum í tyrkneska boltanum og eru ýmis félög áhugasöm um að kaupa hann í sínar raðir.
Sky á Ítalíu segir að Osimhen sé búinn að samþykkja samningstilboð frá Al-Hilal. Þá er greint frá því að Al-Hilal sé búið að bjóða 70 milljónir evra fyrir framherjann, en Napoli sættir sig ekki við minna heldur en 75 milljónir þó að Osimhen eigi aðeins eitt ár eftir af samningi.
Al-Hilal er í stórsókn um þessar mundir og ætlar að styrkja sig verulega fyrir HM félagsliða.
Rúben Neves, Malcom og Aleksandar Mitrovic eru meðal leikmanna Al-Hilal.
Athugasemdir