Fabio Cannavaro, Claudio Ranieri og Stefano Pioli eru líklegastir til að taka við af Luciano Spalletti hjá ítalska landsliðinu. Athletic greinir frá.
Spalletti tilkynnti sjálfur að hann yrði rekinn á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Moldóvu.
Ítalska liðið tapaði fyrir Norðmönnum, 3-0, í fyrsta leiknum í undankeppni HM á dögunum og var Spalletti í kjölfarið tilkynnt að hann yrði látinn fara eftir verkefnið.
Athletic segir ítalska fótboltasambandið með þrjá kosti í forgangi. Það eru þeir Cannavaro, Pioli og Ranieri.
Ranieri hætti með Roma á dögunum þegar samningur hans rann út, enn hann hafði hugsað sér að hætta í þjálfun í annað sinn. Hann gæti þó átt erfitt með að hafna tækifærinu að stýra landsliðinu, eitthvað sem hann á enn eftir að afreka á farsælum ferli sínum.
Cannavaro er annað nafn á blaði. Hann stýrði síðast Dinamo Zagreb í Króatíu en var látinn fara. Stefano Pioli er annar kostur, en hann er sá eini sem er þegar í starfi.
Hann er þjálfari Al Nassr í Sádi-Arabíu og hefur áður náð frábærum árangri með AC Milan og Fiorentina.
Ranieri og Pioli eru líklega á undan Cannavaro í röðinni, sem hefur ekki jafn mikla reynslu eða náð jafn miklum árangri og hinir tveir á þjálfaraferlinum.
Athugasemdir