Borussia Dortmund hefur náð samkomulagi við Sunderland um kaup á enska miðjumanninum Jobe Bellingham.
Dortmund hefur lengi haft áhuga á Bellingham og lagði fram sitt fyrsta tilboð á dögunum sem Sunderland hafnaði um leið. Það tilboð hljóðaði upp á 15 milljónir punda, en Dortmund gerði nýtt og endurbætt tilboð sem Sunderland hefur samþykkt.
Annað tilboðið nemur um 32 milljónum punda og mun Sunderland frá 15 prósent af endursöluvirði leikmannsins.
Ef allt gengur að óskum verður Bellingham stærsta sala í sögu Sunderland.
Um 4,2 milljónir punda er í árangurstengdum greiðslum og ef öll skilyrði eru uppfyllt verður hann annar dýrasti leikmaður í sögu Dortmund.
Jobe, sem er 19 ára gamall, var valinn efnilegasti leikmaður ensku B-deildarinnar á tímabilinu og í liði ársins.
Hann er yngri bróðir Jude Bellingham, sem gerði garðinn einmitt frægan með Dortmund. Jude spilaði með Dortmund í þrjú ár áður en hann var seldur til Real Madrid á Spáni fyrir 110 milljónir punda.
Athugasemdir