Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   mán 09. júní 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
5. deild: Spyrnir fór létt með Þorlák
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: EPA
Þorlákur 0 - 4 Spyrnir
0-1 Arnór Snær Magnússon ('23 )
0-2 Alexander Snær Einarsson ('35 , Sjálfsmark)
0-3 Steinþór Hrímnir Aðalsteinsson ('70 )
0-4 Gabríel Daníelsson ('90 )

Þorlákur tók á móti Spyrni í eina leik gærdagsins í íslenska boltanum og byrjuðu gestirnir af krafti.

Spyrnir tók forystuna á 23. mínútu með marki frá Arnóri Snæ Magnússyni áður en Alexander Snær Einarsson tvöfaldaði forystuna með óheppilegu sjálfsmarki.

Spyrnir leiddi með tveggja marka mun allt þar til í seinni hluta síðari hálfleiks, þegar Steinþór Hrímnir Aðalsteinsson og Gabríel Daníelsson innsigluðu sigurinn. Lokatölur 0-4 fyrir Spyrni.

Spyrnir er með sjö stig eftir fjórar umferðir á meðan Þorlákur situr eftir með þrjú stig.

Þorlákur Hrafnkell Ægir Hafsteinsson (m), Karl Viðar Magnússon, Ingvar Björgvinsson, Jón Eyjólfur Guðmundsson, Ingvar Óli Sigtryggsson, Gabríel Ingi Helgason, Alex Bjarni Andrésson (80'), Erling Orri Sturluson (72'), Hrannar Ari Örvarsson (46'), Pétur Gunnar Rúnarsson, Alexander Snær Einarsson
Varamenn Birkir Orri Ragnarsson, Arnór Snær Arnarson (46'), Hrafn Aron Hauksson (80'), Henrik Hugi Geirdal Helgason (72'), Joel Erik Svedberg (m)

Spyrnir Daníel Hólm Skúlason (m), Kristófer Bjarki Hafþórsson, Unnar Birkir Árnason, Arnór Snær Magnússon, Steinþór Hrímnir Aðalsteinsson, Eyþór Atli Árnason, Finnur Huldar Gunnlaugsson (51'), Dagur Logi Sigurðsson (80'), Sævar Atli Sigurðarson (72'), Helgi Magnús Gunnlaugsson, Almar Aðalsteinsson (51')
Varamenn Jakob Jóel Þórarinsson (51), Róbert Þormar Skarphéðinsson (80), Heiðar Logi Jónsson (51), Gabríel Daníelsson (72)
5. deild karla - B-riðill
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    RB 3 3 0 0 7 - 2 +5 9
2.    Spyrnir 4 2 1 1 17 - 8 +9 7
3.    BF 108 3 2 0 1 6 - 2 +4 6
4.    KFR 3 2 0 1 5 - 3 +2 6
5.    SR 3 1 1 1 10 - 11 -1 4
6.    Stokkseyri 3 1 0 2 5 - 8 -3 3
7.    Þorlákur 4 1 0 3 6 - 13 -7 3
8.    Úlfarnir 3 0 0 3 5 - 14 -9 0
Athugasemdir
banner
banner
banner