Albanía gerði markalaust jafntefli á heimavelli gegn Serbíu er liðin mættust í undankeppni HM á dögunum.
Það ríkir mikil andúð á milli Albana og Serba og fóru albönsku áhorfendurnir ekki leynt með tilfinningar sínar þegar serbneski þjóðsöngurinn fór í gang.
Rúmlega 22 þúsund manns mættu á völlinn og voru það ekki einn eða tveir hópar af áhorfendum sem bauluðu, heldur virtist nánast hver einasti áhorfandi gera sitt besta til að vera með læti þegar þjóðsöngur Serba var spilaður.
Niðurstaðan var ærandi hávaði í bland við þjóðsöng Serba, en myndband af atvikinu má sjá hér fyrir neðan.
Leikurinn var nokkuð jafn en Albanir fengu besta færi leiksins þegar Rey Manaj klúðraði vítaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks.
Albanian fans booing and whistling the serbian anthem before the match
byu/YourNameNameName insoccer
Athugasemdir