Þýskaland 0 - 2 Frakkland
0-1 Kylian Mbappe ('45 )
0-2 Michael Olise ('84 )
0-1 Kylian Mbappe ('45 )
0-2 Michael Olise ('84 )
Frakkland tók bronsverðlaun í Þjóðadeild karla þetta árið eftir að hafa unnið 2-0 sigur á Þýskalandi á MHP-leikvanginum í Stuttgart í dag.
Kylian Mbappe og Michael Olise skoruðu mörk Frakka í leiknum, en Mbappe gerði mark sitt undir lok fyrri hálfleiks.
Aurelien Tchouameni átti fyrirgjöf frá hægri inn á teiginn á Mbappe sem tók boltann niður, tók eina hraða gabbhreyfingu til hægri áður en hann þrumaði boltanum í netið.
Deniz Undav setti boltann í net Frakka snemma í síðari hálfleiknum en markið var réttilega dæmt af eftir að Niclas Füllkrug braut af sér í aðdragandanum.
Sex mínútum fyrir leikslok gerði Olise út um leikinn með öðru marki Frakka eftir hrikaleg varnarmistök Þjóðverja. Robin Koch ætlaði að taka á móti löngum bolta við miðsvæðið, en misreiknaði flugið á honum og lyfti honum í staðinn yfir liðsfélaga sinn.
Mbappe réðst á boltann og hljóp upp allan völlinn áður en hann lagði hann til hliðar á Olise sem skoraði.
Flottur sigur hjá Frökkum sem taka bronsið í ár. Klukkan 19:00 í kvöld fer fram úrslitaleikur Portúgals og Spánar, en hann er spilaður á Allianz-leikvanginum í München.
Athugasemdir