Ítalska fótboltagoðsögnin Francesco Totti mætti til leiks í goðsagnaleik á Ítalíu og skoraði draumamark í fyrri hálfleik.
Totti fékk boltann á miðjuboganum, lagði hann fyrir sig á lofti og lét vaða frá miðjupunktinum.
Sébastien Frey, fyrrum markvörður Inter, Parma og Fiorentina meðal annars, var ekki langt frá marklínunni en tókst þrátt fyrir það ekki að stöðva magnaða marktilraun Totti.
Ólíklegt er að þetta mark hefði verið skráð á Totti í alvöru fótboltaleik, þar sem Frey ver boltann í slána og fær hann svo í bakið áður en hann fer í netið. Þetta myndi því skrást sem sjálfsmark.
Fyrrum atvinnumenn úr ítalska boltanum mættust í goðsagnaleiknum sem lauk með 7-7 jafntefli.
Juan Sebastián Verón, Hristo Stoichkov, Gianfranco Zola, Adriano og Javier Zanetti eru meðal leikmanna sem tóku þátt í góðgerðarleiknum.
Serse Cosmi og Roberto Donadoni voru í þjálfarahlutverkum.
Sjáðu markið
Leikmannahópur AC Sombrero: Bucci, Amelia, Benarrivo, Apolloni, Lucarelli, Mussi, Zaccardo, Fuser, Hernanes, Dino Baggio, Bressan, Morrone, Osio, Melli, Bojinov, Stoichkov, Adriano, J. Zanetti, Zola
Leikmannahópur FC Rabona: Frey, Ballotta, Panucci, Di Chiara, Aldair, Tonetto, Candela, Galante, Fiore, Budel, Brocchi, Eranio, Pizzi, Volpi, Ventola, Amoruso, Protti, Ganz, Veron, Totti
Athugasemdir