Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 18:27
Ívan Guðjón Baldursson
Tveir íslenskir fyrirliðar - Hafrún gaf stoðsendingu
Kvenaboltinn
Mynd: Kristianstad
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það fóru nokkrir leikir fram í Evrópu í dag þar sem Íslendingar komu við sögu.

Ægir Jarl Jónasson er sá eini sem kom við sögu í karlaflokki þar sem hann var í byrjunarliði AB Kaupmannahafnar sem vann þægilegan 4-0 sigur á heimavelli gegn Middelfart.

Þetta var fjórði sigur AB í röð í þriðju efstu deild danska boltans en liðið á því miður ekki möguleika á að komast upp um deild í ár.

Í kvennaboltanum bar Katla Tryggvadóttir fyrirliðaband Kristianstad í sigri á útivelli. Alexandra Jóhannsdóttir var einnig í byrjunarliði Kristianstad og kom Guðný Árnadóttir inn af bekknum.

Kristianstad lagði Alingsås að velli með þremur mörkum gegn engu og er í fjórða sæti sænsku deildarinnar, með 19 stig eftir 10 umferðir.

Guðrún Arnardóttir var þá í byrjunarliði Rosengård og bar fyrirliðabandið í tapleik gegn AIK. Liðin eru bæði um miðja deild eftir innbyrðisviðureignina, Rosengård er með 13 stig.

Í danska boltanum voru Hafrún Rakel Halldórsdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir í byrjunarliði Bröndby sem tapaði á útivelli gegn Århus.

Hafrún Rakel lagði fyrsta mark leiksins upp í fyrri hálfleik en Århus kom til baka í síðari hálfleik og sigraði leikinn 2-1. Þetta er virkilega svekkjandi tap fyrir Bröndby sem hefði komið sér í Evrópusæti með sigri.

Núna þarf Bröndby að sigra í lokaumferðinni og treysta á hagstæð úrslit á öðrum stað til að komast í Evrópu. Bröndby tekur á móti Odense í lokaumferðinni.

Að lokum kom Sædís Rún Heiðarsdóttir inn af bekknum í 2-0 sigri Vålerenga gegn Stabæk í norska boltanum. Iris Omarsdottir var í byrjunarliði Stabæk.

Vålerenga trónir á toppi norsku deildarinnar með 30 stig eftir 12 umferðir. Stabæk situr eftir með 13 stig eftir fimm tapleiki í röð.

AB Kaupmannahöfn 4 - 0 Middelfart

Alingsas 0 - 3 Kristianstad

AIK 1 - 0 Rosengard

Arhus 2 - 1 Bröndby

Valerenga 2 - 0 Stabæk

Athugasemdir
banner
banner