Portúgal og Spánn mætast í úrslitaleik Þjóðadeildarinnar í kvöld og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Roberto Martínez gerir tvær breytingar á byrjunarliði Portúgala sem lagði Þýskaland að velli í undanúrslitunum, þar sem Vitinha og Francisco Conceicao koma inn í byrjunarliðið fyrir Rúben Neves og Francisco Trincao.
Fertugur Cristiano Ronaldo leiðir sóknarlínuna með Pedro Neto, Bruno Fernandes og Conceicao fyrir aftan sig.
Bernardo Silva og Vitinha eru aftarlega á miðjunni með Joao Neves í hægri bakverði sem mun færa sig inn á miðjuna þegar Portúgalir eru með boltann.
Rúben Dias og Goncalo Inácio eru í hjarta varnarinnar með Nuno Mendes í vinstri bakverði og Diogo Costa á milli stanganna.
Luis de la Fuente gerir tvær breytingar á liðinu sem sigraði 5-4 gegn Frakklandi í undanúrslitum, þar sem Fabián Ruiz og Óscar Mingueza koma inn fyrir Mikel Merino og Pedro Porro.
Lamine Yamal og Nico Williams eru á köntunum með Mikel Oyarzabal í fremstu víglínu. Oyarzabal er í baráttu við Orra Stein Óskarsson um byrjunarliðssæti í fremstu víglínu Real Sociedad á Spáni.
Martín Zubimendi og Pedri eru á miðjunni ásamt Ruiz á meðan Dean Huijsen og Robin Le Normand eru í hjarta varnarinnar, með Marc Cucurella og Mingueza í bakvarðarstöðunum.
Unai Simón heldur byrjunarliðssætinu á milli stanga Spánverja.
Portúgal: Costa, Neves, Dias, Inacio, Mendes, Silva, Vitinha, Neto, Fernandes, Conceicao, Ronaldo
Varamenn: Sa, R. Silva, Veiga, A. Silva, Semedo, Dalot, Mora, Neves, Palhinha, D. Jota, J. Felix, Goncalves, Leao, Ramos, Trincao
Spánn: Simon - Mingueza, Le Normand, Huijsen, Cucurella, Pedri, Zubimendi, Ruiz, Yamal, Williams, Oyarzabal
Varamenn: Raya, Remiro, Vivian, Samu, Porro, Pino, Olmo, Morata, Merino, Lopez, Isco, Grimaldo, Gavi, Cubarsi, Baena
Athugasemdir