Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 22:22
Ívan Guðjón Baldursson
Búnir að bóka læknisskoðun fyrir Osimhen
Mynd: EPA
Fabrizio Romano greinir frá því að félagaskipti Victor Osimhen til Al-Hilal séu nálægt því að vera frágengin.

Ítalíumeistarar Napoli hafa samþykkt 75 milljón evru tilboð frá sádi-arabíska félaginu og er Osimhen búinn að samþykkja risasamning.

Búið er að bóka læknisskoðun fyrir nígeríska framherjann sem var einnig eftirsóttur af öðrum félögum, en ekkert þeirra var reiðubúið til að borga svo mikinn pening fyrir leikmann með eitt ár eftir af samningi.

Osimhen er kominn heim til Nígeríu í sumarfrí og mun taka ákvörðun um framtíðina á morgun. Ef hann samþykkir að ganga til liðs við Al-Hilal er ljóst að sumarfríið hans verður talsvert styttra útaf HM félagsliða.
Athugasemdir