![Icelandair](/images/icelandair2_150x150px.png)
Jón Dagur Þorsteinsson er á sínum stað í íslenska landsliðshópnum sem er í London að búa sig undir vináttulandsleik gegn Englandi sem fram fer á Wembley á föstudagskvöld.
Eftir það heldur liðið beint til Hollands og leikur gegn heimamönnum í Rotterdam.
Jón Dagur ræddi stuttlega við Fótbolta.net í hótelgarðinum við sveitasetrið þar sem íslenska liðið dvelur.
Eftir það heldur liðið beint til Hollands og leikur gegn heimamönnum í Rotterdam.
Jón Dagur ræddi stuttlega við Fótbolta.net í hótelgarðinum við sveitasetrið þar sem íslenska liðið dvelur.
„Þetta eru tvö skemmtileg lið til að spila við og verður skemmtilegt og krefjandi. Það er extra að spila gegn liðum sem mörg augu eru á, þetta er flottur gluggi," segir Jón Dagur.
Hann skoraði sjö mörk og átti sjö stoðsendingar í 40 leikjum í tímabilinu í Belgíu. OH Leuven hafnaði í 4. sæti í umspili um sæti í Sambandsdeildinni á næstu leiktíð en aðeins eitt lið vann sér sæti í keppninni og í þetta sinn var það Gent.
„Þetta var virkilega krefjandi tímabil. Við vorum í fallbaráttu allt þar til að umspilið byrjaði. Við náðum að troða okkur í Evrópuumspil en þetta var erfitt tímabil. Við náðum að halda okkur upp en við ætluðum okkur ekki að vera í einhverri fallbaráttu."
Jón Dagur segist bjartsýnn á að liðið verði á betri stað á næsta tímabili, skipt var um þjálfara á miðju tímabili og allt líti betur út eftir að Spánverjinn Óscar García tók við stjórnartaumunum. Þá segist hann sjálfur vera ánægður innan sem utan vallar.
„Ég og fjölskyldan höfum komið okkur mjög vel fyrir og líður vel þarna," segir Jón Dagur sem segir ekki í kortunum að hann færi sig um set í sumar en hann á eitt ár eftir af samningi sínum.
Athugasemdir