„Ég er mjög sáttur,“ Sagði Bjarni Jóhannsson þegar hann var spurður af því eftir leik hvort að hann væri ekki sáttur með þrjú stig eftir heimaleik. „Mér fannst við vera klárlega betra liðið í leiknum. Það vantaði herslumuninn í fyrri hálfleik að nýta sér þessa yfirburði. Við áttum fullt af fínum upphlaupum og spilið gekk bara þolanlega. Þetta var mjög kærkomið en þetta var mjög tæpt og í stöðunni 1-0 eigum við náttúrulega að ganga frá leiknum.“
Lestu um leikinn: KA 2 - 0 Völsungur
Það virðist fjölga í leikmannahópnum hjá þér með hverjum leik sem líður.
„Já já þetta gengur hægt að vinna sig út úr þessum meiðslum en hópurinn er að þéttast. Við erum að missa menn í bönn þannig að það er eins gott að fá þessa gæja til baka.“
Það var mikið að gerast á þeim væng sem Hallgrímur Mar var ekki á í fyrri hálfleiknum sem virtist koma mörgum á óvart.
„Já, þetta þróaðist bara þannig. Það var ekkert planlagt að fara frekar upp hægra megin en vinstra megin. En það var greinilegt að það voru margir búnir að stúdera það að Hallgrímur væri hérna vinstra megin og fljótir að tvöfalda á hann en það voru bara aðrir sem leystu það.“
Nánar er rætt við Bjarna í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir























