Amorim með áhugaverða klásúlu - Man City sýnir Mainoo áhuga - Juve vill Silva - Liverpool gæti gert tilboð í Araujo
Venni: Get ekkert farið að sparka í ruslatunnur eða urðað yfir menn
Hemmi hafði ekki tíma í að einbeita sér að leiknum - „Það voru allir að biðja um skiptingu"
Liam Daði: Við stefnum á Laugardalsvöll og það er ekkert flókið
Karl Ágúst talar um hátt spennustig - „Allt undir á sunnudaginn"
Haraldur Freyr: Það er bara hálfleikur í þessu
Gunnar Heiðar um rauða spjald Diouck: Leiðinlegt að þurfa að fara í einhvern svona leik
Magnús Már: Það er gjörsamlega óásættanlegt
Viktor Jóns: Tók eftir því strax í vetur hvað býr í þessum gæja
Damir: Það er enginn skjálfti
Láki: Þetta réðst ekki hér
Lárus Orri kjarnyrtur „Berjast fyrir þessu og fara í svolítið fuck you mode"
Dóri Árna: Það er alveg rétt að stigasöfnun hefur verið rýr í síðustu deildarleikjum
Breki Baxter: FH leikurinn situr núna í okkur
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
Sölvi eftir stórsigur á Meistaravöllum: Líst mjög vel á þetta gras hér í KR
Óskar Hrafn hugar að breytingum: Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir árangri liðsins
Davíð Smári: Ósáttur með að við skulum gleyma fyrir hvað við stöndum
   lau 04. júlí 2020 16:50
Kristófer Jónsson
Atli Sveinn: Öll lið í stöðugri bætingu
Atli Sveinn var ánægður með sína menn í dag.
Atli Sveinn var ánægður með sína menn í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Atli Sveinn Þórarinsson, annar af þjálfurum Fylkis, var að vonum ánægður eftir 2-1 sigur sinna manna gegn Fjölni í fjórðu umferð Pepsi Max-deildarinnar í dag.

„Ég er ánægður að vinna. Það eru allir leikir mikilvægir í þessari deild. Við komum hingað til að sækja þrjú stig og fylgdum okkar uppleggi bara nokkuð vel." sagði Atli eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Fjölnir 1 -  2 Fylkir

Fylkismenn eru nú búnir að vinna tvo leiki í röð eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjum sínum.

„Ég held að öll lið séu bara að bæta sig frá leik til leiks. Við sáum Skagamenn í gær (4-1 útisigur gegn Val) og ég held að þetta hafi verið besti leikur Fjölnis líka í dag. Þannig að ég held að öll liðin séu í stöðugri bætingu."

Næsti leikur Fylkis er gegn KA á Wurth-vellinum næstkomandi fimmtudag. Atli Sveinn þekkir KA-liðið mjög vel en hann var fyrirliði liðsins, síðast árið 2015.

„Við tökum bara einn leik fyrir í einu og það er alltaf hrikalega gaman að mæta vinum mínum í KA, þannig að mér lýst vel á framhaldið." sagði Atli að lokum.

Viðtalið við Atla Svein má sjá í spilaranum að ofan.
Athugasemdir