Kolbeinn Sigþórsson var að vonum ánægður eftir 4-0 sigur Íslands gegn Liechtenstein í æfingaleik á Laugardalsvelli í kvöld.
Framherjinn öflugi komst sjálfur á blað er hann skoraði fyrsta mark Íslands í leiknum og spilaði 80 mínútur, einstaklega jákvætt í ljósi þess hversu tæpur hann hefur verið vegna meiðsla í aðdraganda mótsins.
Framherjinn öflugi komst sjálfur á blað er hann skoraði fyrsta mark Íslands í leiknum og spilaði 80 mínútur, einstaklega jákvætt í ljósi þess hversu tæpur hann hefur verið vegna meiðsla í aðdraganda mótsins.
Lestu um leikinn: Ísland 4 - 0 Liechtenstein
„Þetta var fínn leikur fyrir okkur alla að fá og enda þetta með sigri hérna. Það er fínt að fara á EM með góðu tilfinninguna," sagði Kolbeinn, sem er ánægður með endurhæfingu síðustu daga.
„Þetta er búið að vera frábært frá því að ég byrjaði fyrir tveimur til þremur vikum og ég náði mikilvægum 80 mínútum í dag. Ég er mjög bjartsýnn upp á framhaldið. Ég fann að ég var stífur eftir leik en það er bara eðlilegt, ég hef ekki spilað leik í einn og hálfan mánuð. Það var gott að ná að skora ekta pot mark."
Kolbeinn er ánægður fyrir hönd Eiðs Smára, sem skoraði í leik sem gæti hafa verið hans síðasti á Laugardalsvelli.
„Ég er ánægður með að Eiður hafi náð að skora mark í örugglega seinasta leiknum sínum, það var frábært fyrir hann," segir Kolbeinn, sem er orðinn spenntur fyrir Evrópumótinu.
„Ég get ekki beðið eftir því að þetta mót byrji, það er mikil tilhlökkun hjá okkur öllum að fara út og hefja þetta mót. Það er það sem heldur manni gangandi í þessu, ég sagði það frá byrjun að ég myndi fókusera 100% á endurhæfinguna og þetta myndi ganga vel. Auðvitað hefur maður látið sig dreyma aðeins hvernig þessir leikir í Frakklandi," sagði Kolbeinn.
Athugasemdir






















