,,Þetta er gríðarlega svekkjandi eftir alla þessa vinnu, en þetta er pjúra víti svo það er ekkert við þessu að gera. Klaufalegt brot, við vorum ekki nógu skynsamir þarna í endann," sagði Jens Elvar Sævarsson leikmaður Gróttu eftir 1-2 tap gegn Fram í Borgunarbikarnum en Fram skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu í lokin á framlengingu.
,,Svo er spurning hvort við hefðum átt að fá það sama í lokin. Ég fæ olnbogaskot í andlitið, við skullum aldrei saman. Hann viðurkenndi það strákurinn. Hann brýtur á mér en Kiddi dæmdi þetta vel og hlýtur að missa af einhverju."
Grótta lá mikið til baka í leiknum og hélt tempóinu niðri hjá Fram liðinu í kvöld.
,,Það gekk upp það sem við lögðum upp með. Við hefðum átt að vera klókari í þeim sénsum sem við fengum til að breika. Því mér fannst við fá fullt af sénsum til að breika á þá en gerðum það ekki nógu vel. Við getum samt verið stoltir af okkar frammistöðu í dag."
Nánar er rætt við Jens Elvar í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir
























