Valur 1 - 2 Fram
1-0 Kolbrá Una Kristinsdóttir ('1)
1-1 Brookelynn Paige Entz ('9)
1-2 Una Rós Unnarsdóttir ('57)
1-0 Kolbrá Una Kristinsdóttir ('1)
1-1 Brookelynn Paige Entz ('9)
1-2 Una Rós Unnarsdóttir ('57)
Valur tók á móti Fram í eina leik kvöldsins í A-deild Lengjubikars kvenna og náðu heimakonur forystunni snemma þegar Kolbrá Una Kristinsdóttir skoraði strax á fyrstu mínútu.
Gestirnir úr Úlfarsárdal játuðu sig ekki sigraða og jöfnuðu metin skömmu síðar með marki frá Brookelynn Paige Entz, sem var í Grindavík í fyrra.
Staðan var jöfn í leikhlé og náðu gestirnir forystunni í síðari hálfleik. Una Rós Unnarsdóttir var þar á ferðinni og tókst Val ekki að gera jöfnunarmark, svo lokatölur urðu 1-2.
Þetta er annar tapleikur Vals í röð og er liðið með 6 stig eftir 4 umferðir.
Þetta er aftur á móti fyrsti sigurleikur Fram í Lengjubikarnum og er liðið með 4 stig eftir 3 umferðir.
Athugasemdir


