Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   þri 09. júní 2020 10:45
Elvar Geir Magnússon
Pedersen bestur í deildinni - „Þrír sem ekki er hægt að hagga"
Patrick Pedersen í leik með Val.
Patrick Pedersen í leik með Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Patrick, Hilmar Árni og Óskar eru bestir í deildinni og því verður ekki haggað," segir Gunnar Birgisson í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net.

Þar var rætt um hverjir væru bestu leikmenn Pepsi Max-deildar karla og Gunnar opinberaði sinn topp fimm lista.

Topp fimm listi Gunnars:
1. Patrick Pedersen - Valur
2. Hilmar Árni Halldórsson - Stjarnan
3. Óskar Örn Hauksson - KR
4. Thomas Mikkelsen - Breiðablik
5. Hallgrímur Mar Steingrímsson - KA

„Mér datt líka í hug Lennon en var með þetta mjög svipað. Mér finnst Patrick Pedersen bestur," segir Ingólfur Sigurðsson sem nefnir einnig Kára Árnason í Víkingi.

„Hann er ekki eðlilega góður, hann er geggjaður varnarmaður. Það er gaman að vera með þennan gæja í deildinni."

Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan eða í gegnum Podcast forrit.
Niðurtalningin - Helgarsportið og bestu leikmenn í Pepsi Max
Athugasemdir
banner
banner
banner