„Ég er pínu svekktur að hafa ekki unnið leikinn, við viljum vinna leikina heima. Þetta var hörkuleikur, mikil barátta og læti í honum og kannski pínu á kostnað fótboltans stundum."
Lestu um leikinn: Fram 2 - 2 FH
Jón Sveinsson var spurður út í vítaspyrnudómana tvo sem voru í fyrri hálfleik.
„Mér fannst nú ekki vera víti það sem hann dæmdi á okkur en seinna vítið klárt víti þar sem Jannik var bara á undan í boltann og Sindri tekur hann niður inn í teig en mér fannst vítið sem við fengum á okkur mjög soft."
Framarar fluttu sig upp í Úlfarsárdalinn um mitt síðasta tímabil og hafa verið gríðarlega öflugir á sínum nýja heimavelli og verður ekki auðvelt fyrir lið að mæta þeim í Úlfarsárdalnum.
„Nei vonandi ekki, það á að vera þannig og þannig viljum við hafa það en FH ingarnir mættu alveg í dag, gáfu okkur leik og voru bara mjög duglegir og öflugir þannig þú þarft að vera tilbúin í slag og baráttu til að fá eitthvað út úr leiknum og 2-2 jafntefli á endanum kannski sanngjörn úrslit."